Bygg
Bygg

Viðskipti

Íþróttafélaginu Nes færð gjöf að upphæð kr. 500.000.-
Þriðjudagur 25. febrúar 2003 kl. 16:16

Íþróttafélaginu Nes færð gjöf að upphæð kr. 500.000.-

Það ríkti mikil gleði og ánægja í íþróttasal Heiðarskóla þegar fulltrúar Skipaafgreiðslu Suðurnesja (SAS) mættu þar á æfingartíma í gær hjá félögum íþróttafélagsins Nes, sem er íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum. Tilefni heimsóknar SAS var að færa félaginu gjöf að upphæð kr. 500.000.-, sem gefin er í tilefni 40 ára afmælis Skipaafgreiðslunnar. F.h. SAS mættu Jón Norðfjörð, Ólafía Guðjónsdóttir, Guðmundur R.J. Guðmundsson og Sólveig Þórðardóttir. Það var Gísli Jóhannsson formaður ásamt fleiri stjórnarmönnum og félögum Ness sem veittu gjöfinni viðtöku.40 ára afmælis Skipaafgreiðslunnar verður minnst í 10. tbl. Víkurfrétta 6. mars n.k. og þar verða fjölmargar afmæliskveðjur frá viðskiptavinum fyrirtækisins. Ákveðið var að hluti tekna af afmæliskveðjunum, ásamt framlagi SAS myndaði sjóð til að gefa til góðs málefnis á þessum tímamótum. Þannig eiga öll þau fyrirtæki og einstaklingar sem senda Skipaafgreiðslunni afmæliskveðjur, sína hlutdeild í þessari gjöf og erum við hjá SAS mjög þakklát fyrir hve vel hefur tekist til, segir í frétt frá fyrirtækinu.

Íþróttafélagið Nes heldur uppi þróttmiklu íþrótta- og félagsstarfi og eru markmið félagsins að efla íþróttir og félagslíf fatlaðra einstaklinga á Suðurnesjum undir kjörorðunum “Það snýst allt um viðhorf” Ýmsar upplýsingar um Nes má lesa á heimasíðu þeirra www.gi.is/nessport.

Íþróttafélagið Nes hefur frjálsan ráðstöfunarrétt á gjafafénu, en það er ljóst að stuðningur af þessu tagi er félaginu mjög mikilvægur. Því hvetjum við hjá SAS alla til að styðja félagið og taka með því þátt í þessu góða og jákvæða uppbyggingarstarfi.

Á myndinni má m.a. sjá ásamt föngulegum hóp íþróttamanna, stjórn Ness og eigendur SAS. Nes: Gísli Jóhannsson fomaður, Jóhann Kristjánsson, Borgar Jónsson, Magnús Þórisson, Guðmundur "Brói" Sigurðsson, Hafsteinn Ingibergsson og Anna Lea Björnsdóttir þjálfari. SAS: Hjónin Jón Norðfjörð og Ólafía Guðjónsdóttir og hjónin Sólveig Þórðardóttir og Guðmundur R.J. Guðmundsson.
Bílakjarninn
Bílakjarninn