Íslensk hönnun í öndvegi í flugstöðinni í HönnunarMars
Íslensk hönnun verður sett í öndvegi í tilefni af HönnunarMars en Isavia í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Íslands býður upprennandi hönnuðum að selja hönnun sína á besta stað á verslunarsvæðinu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar 4.-22. mars.
CREATIVE TAKE OFF er nýr vettvangur fyrir hönnuði að koma verkum sínum á framfæri, staðsettur í brottfarasal Keflavíkurflugvallar. „Okkur finnst að frábærar hugmyndir eigi að fá byr undir báða vængi og að þeir sem fara um flugstöðina á leið sinni til annarra landa geti gripið með sér íslenska hágæðahönnun og borið hróður listamanna út fyrir landsteinana.“
Við valið verður lögð áhersla á fjölbreytt vöruúrval og að gefa ferðamönnum tækifæri til að kynna sér gróskuna í íslenskri hönnun, segir í kynningu frá Isavia.