Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Viðskipti

Iceland Express til Flórída
Fimmtudagur 11. ágúst 2011 kl. 14:47

Iceland Express til Flórída

Iceland Express mun fljúga til Flórída í Bandaríkjunum allan næsta vetur. Flogið verður á laugardögum frá Keflavík til Flórída og á sunnudögum frá Flórída. Fyrsta flugið verður í byrjun október og verður flogið fram í miðjan apríl 2012 eða fram yfir páska.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept


Félagið var með áætlunarferðir til Flórída síðastliðið haust og vor og gengu þær afar vel, því hefur verið ákveðið að fjölga ferðum.


„Þetta er hluti af stækkun leiðakerfisins okkar á Norður-Atlantshafsleiðinni,“ segir Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, “enda lítum við svo á að þarna liggi frekari sóknarfæri.”

Bílakjarninn
Bílakjarninn