Föstudagur 30. apríl 2004 kl. 12:22
Húsfyllir á ráðstefnu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar

Fjölmennt var á ráðstefnu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. um rekstur flugstöðva og framtíðarhorfur í ferðaþjónustu og öryggismálum á Hótel Nordica í gær. Ráðstefnuna sóttu 160-170 manns og óhætt er því að segja að áhugi fyrir samkomunni hafi verið í samræmi við björtustu vonir. Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, setti ráðstefnuna og sagði meðal annars að ferðaþjónustan væri einn mikilvægasti vaxtarbroddur atvinnulífs á Íslandi. Þar væri staðið að málum á faglegan og fjölbreyttan hátt. Atvinnugreinin lagaði sig að breyttum aðstæðum hverju sinni og væri fljót að tileinka sér nýjungar. Ráðherra sagði að Flugstöðin og Keflavíkurflugvöllur væru ,,gluggi til annarra þjóða". Þjónusta þar og aðstaða skiptu sköpum fyrir framtíð samgangna og ferðamála á Íslandi.
Tveir erlendir ráðgjafar fluttu erindi, auk margra íslenskra, þeir Duncan Tolson, yfirmaður viðskiptaþróunar BAA, fyrirtækis sem rekur helstu flugvelli Bretlands, og Alan Bork, ráðgjafi frá Danmörku. Þeir segja að hvergi í Evrópu hafi farþegum í einni flugstöð fjölgað meira undanfarin ár en einmitt hér á Keflavíkurflugvelli.

Magnús Oddsson, ferðamálastjóri, benti á að ferðamönnum í heiminum öllum hefði fjölgað um 4% undanfarin áratug en um 8% á Íslandi á sama tíma. Ísland væri í þriðja sæti að þessu leyti í Evrópu. Hann sagði áhugaverðustu breytinguna í ferðaþjónustu hér á síðari árum vera þá að Ísland væri orðið heilsársáfangastaður og spáði því að ferðamönnum myndi fjölga enn meira hérlendis næstu árin en miðað væri við í áætlununum um uppbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Þannig myndu erlendir ferðamenn á Íslandi 15. janúar 2020 verða 10% fleiri en 15. júlí 2004.