Humarsalan selur fyrir Skinney-Þinganes
Humarsalan ehf í Reykjanesbæ hefur tekið að sér alla innanlandssölu á humri fyrir Skinney-Þinganes en samningur þess efnis var undirritaður nú á dögunum
Humarsalan ehf. er ungt fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í dreifingu á humri á innanlandsmarkaði. Samningurinn við Skinney-Þinganes hefur í för með sér að Humarsalan tekur að sér alla sölu og dreifingu á hornfirskum humri til innlendra kaupenda, þ.m.t. verslana, veitingahúsa og einstaklinga.
Guðjón Vilhelm, framkvæmdastjóri Humarsölunnar, segir samninginn geysilega þýðingarmikinn fyrir fyrirtækið.
„Eftirspurn eftir humri hérlendis hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og þessi samningur gerir okkur kleift að blása til enn frekari sóknar á markaði fyrir humar og aðrar hágæða sjávarafurðir. Það er lykilatriði fyrir fyrirtæki eins og okkar að geta tryggt nægt framboð til viðskiptavina okkar. Skinney-Þinganes framleiðir um 150 tonn af humri á ári og samningurinn tryggir Humarsölunni því beinan aðgang að gnægt af fyrsta flokks hráefni,“ segir Guðjón.
Humarsalan mun samkvæmt samningnum einnig sjá alfarið um aðra smásölu fyrir Skinney-Þinganes, sem framleiðir töluvert af niðurlagðri síld og ýsubitum fyrir innanlandsmarkað.