Húllumhæ hjá Vodafone í Reykjanesbæ!
Mikið fjör verður við nýja og stækkaða verslun Rafeindatækni við Tjarnargötu í Reykjanesbæ á laugardaginn kemur, en þá verður sérstakur Vodafone-dagur í versluninni. Ís og blöðrur verða í boði fyrir alla, skemmtilegir leikir og frábær tilboð. Starfsmenn Vodafone munu veita einstaklingum og fyrirtækjum ráðgjöf um val þjónustuleiðum og fjarskiptabúnaði og vonast að sjálfsögðu til þess að sjá sem flesta.
Rafeindatækni hefur um árabil verið umboðsaðili fyrir Vodafone í Reykjanesbæ og með stækkun á húsnæði sínu getur Rafeindatækni boðið enn betri þjónustu en hingað til. Úrval símtækja hefur verið aukið til muna og verslunin færð í stíl við aðrar verslanir Vodafone um allan heim.
Hjá Rafeindatækni er einnig hægt að nálgast myndlykla fyrir Digital Ísland, stærsta dreifikerfi á Íslandi fyrir sjónvarpsefni, en Digital Ísland er í eigu Vodafone. Á undanförnum mánuðum hefur mikil uppbygging á kerfinu átt sér stað og meðal annars hefur framboð sjónvarpsstöðva stóraukist víða á landsbyggðinni. Rafeindatækni hefur um árabil verið umboðsaðili Digital Ísland og býður upp á fjölbreytta þjónustu í tengslum við það, m.a. uppsetningar á loftnetum og ráðgjöf.
Vodafone á Íslandi er fjarskiptafyrirtæki í eigu Teymis hf. sem skráð er á OMX Nordic Exhange á Íslandi. Starfsmenn Vodafone eru um 350 talsins og þjónusta viðskiptavini á heimilum og hjá fyrirtækjum um land allt með farsíma, síma, nettengingar og sjónvarp. GSM þjónusta Vodafone nær til 98% landsmanna og með samstarfi við Vodafone Group, eitt öflugasta fjarskiptafyrirtæki í heimi, er viðskiptavinum Vodafone tryggð örugg farsímaþjónusta um allan heim.
Mynd: Reykjanesbær. Ljósmynd: Oddgeir Karlsson