Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Viðskipti

HS Orka hf undirritar orkusölusamning við Íslenska kísilfélagið hf
Fimmtudagur 17. febrúar 2011 kl. 20:14

HS Orka hf undirritar orkusölusamning við Íslenska kísilfélagið hf

HS Orka hf undirritaði í dag samning við Íslenska kísilfélagið um sölu á 30 MW raforku til kísilvers í Helguvík á tímabilinu maí 2013 til ársloka 2015. Þessi raforka er til reiðu þar sem nú í október verða laus 35 MW úr samningi um afhendingu til álvers Norðuráls í Grundartanga en Orkuveita Reykjavíkur tekur samkvæmt samningi við þeirri sölu. Heildar orkuþörf kísilversins er um 66 MW og mun Landsvirkjun að öðru leyti annast orkusöluna til þessa áfanga kísilversins. Ástæða þessa skamma samningstíma HS Orku er sú að þá getur HS Orka haft orkuna til reiðu fyrir aðra notkun í Helguvík eða þá stækkun kísilversins ef svo ber undir. Verðmæti samningsins fyrir HS Orku eru röskir 20 M. USD eða um 2,5 milljarðar króna en orkuverðið er umtalsvert hærra en samkvæmt eldri samningi. Verðið er ekki tengt álverði eða verði annarra hrámálma heldur er um fasta umsamda hækkun að ræða árlega.

Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf, nefnir mikilvægi þessa fyrsta skrefs uppbyggingar í Helguvík:
„Það er HS Orku hf mikið ánægjuefni að geta komið að þessu verkefni og tryggt framgang þessi. Bygging kísilversins er geysilega mikilvæg fyrir svæðið og landið í heild og er vonandi einungis fyrsta skrefið af mörgum til nauðsynlegrar uppbyggingar. HS Orka hefur hug þátttöku í þeirri uppbyggingu með frekari orkuöflun og væntir þess að fá til þess þau leyfi sem til þarf“.


Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024