Þriðjudagur 20. maí 2003 kl. 12:09
Hitaveitan og Sorpeyðingarstöðin semja um nýtingu á orku

Hitaveita Suðurnesja h.f. og Sorpeyðingarstöð Suðurnesja s.f. hafa skrifað undir samning um nýtingu á orku frá hinni nýju brennslustöð, Kölku í Helguvík. Framleitt verður rafmagn með gufu frá gufukatli brennslulínunnar. Fyrirtækið Varmaverk mun sjá um uppsetningu tækjabúnaðar. Framleidd verða um 440 kW af raforku með gufutúrbínu. Af því notar stöðin mest um 300kW til eigin þarfa, en umframorkan fer út á almenna raforkunetið.Auk þess nýtir stöðin varmaorku frá brennslunni til upphitunar á húsi og lóð. Kalka verður því sjálfbær bæði hvað varðar raforku og varma. Brennsla til orkunýtingar er talin til endurvinnslu og hækkar endurvinnsluhlutfall stöðvarinnar verulega við þetta. Samningurinn felur í sér að HS leggur til og rekur allan búnað til raforkuframleiðslunnar, ásamt búnaði til að losna við afgangsvarma. SS leggur til gufu til rekstursins og húsnæði fyrir búnaðinn. SS kaupir svo raforku af HS, sem tryggir orku til rekstursins annað hvort frá rafstöðinni eða beint af netinu, sem eykur rekstraröryggið til muna. Samningurinn verður endurskoðaður að tveimur árum liðnum eftir að reynsla hefur fengist af rekstrinum.
Fólk á mynd: Sigríður Jóna Jóhannesdóttir (formaður stjórnar SS), Guðjón Guðmundsson framkvæmdastjóri SS, Júlíus J. Jónsson forstjóri HS, Jónas Matthíasson framkvæmdastjóri Varmaverks, Albert Albertsson aðstoðarforstjóri HS.