Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Helga Jóhanna til HS Veitna
Helga Jóhanna Oddsdóttir hefur verið ráðin í starf sviðsstjóra rekstrarsviðs HS Veitna.
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
mánudaginn 6. janúar 2020 kl. 13:27

Helga Jóhanna til HS Veitna

Helga Jóhanna Oddsdóttir hefur verið ráðin í starf sviðsstjóra rekstrarsviðs HS Veitna. Undir rekstrarsvið heyra málaflokkarnir mannauðsmál, gæða- og skjalastjórnun, öryggismál, upplýsingatækni, þjónustuver og markaðs- og kynningarmál. Eins er sviðsstjóri rekstrarsviðs staðgengill forstjóra fyrirtækisins.

Helga Jóhanna er B.Sc í viðskiptafræði og lauk M.Sc. gráðu frá Háskóla Íslands með áherslu á stjórnun og stefnumótun. Helga hefur m.a. starfað sem forstöðumaður starfsmannaþjónustu Reykjanesbæjar á árunum 2003 – 2008, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Opinna kerfa 2008 – 2011. Haustið 2011 stofnaði Helga stjórnendaþjálfunar- og ráðgjafarfyrirtækið Carpe Diem ehf. sem síðar sameinaði krafta sína Strategic Leadership ehf. sem Helga hefur stýrt undanfarin ár.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024