Heildartekjur Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. 6,8 milljarðar króna
Heildartekjur á rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. stórjukust á milli áranna 2005 og 2006. Árið 2006 voru þær 6.783 milljónir króna sem er 570 milljónir króna meira en árið 2005.
Rekstararhagnaður eftir skatta árið 2006 var kr. 22 milljónir en auk þess greiddi FLE eiganda sínum, íslenska ríkinu, arð að upphæð kr. 250 milljónir króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá FLE, en þar er tekið fram að árið 2006 hafi, eins og árið þar á undan, einkennst af miklum framkvæmdum og var fjárfest fyrir 4 milljarða á nýliðnu ári.
Framkvæmdirnar eru til að bregðast við auknum farþegafjölda, en farþegum um flugstöðina fjölgaði um rúm 11% á árinu 2006 miðað við árið 2005, eða úr rétt tæpum 1.817 þúsund farþegum í rúma 2.019 þúsund farþega. Þetta er í samræmi við farþegaspá sem breska fyrirtækið BAA Plc gerði árið 2004 fyrir FLE. Spáð er um 6% fjölgun árið 2007 og að árið 2015 verði farþegafjöldinn kominn vel yfir þrjár milljónir, sem jafngildir tvöföldun á einum áratug.
Stefnt er að því að ljúka framkvæmdum að mestu fyrir 20 ára vígsluafmæli flugstöðvarinnar þann 14. apríl 2007.