Haustmarkaður Hlöðunnar í Vogum
Haustmarkaður Hlöðunnar í Vogum á Vatnsleysuströnd verður haldinn í annað sinn laugardaginn 17. september frá kl. 12-18.
Laugardaginn 17. september bjóða íbúar Voga og Vatnsleysustrandar grönnum sínum að njóta haustuppskerunnar með sér.
Meðal þess sem verður á boðstólum er ýmislegt matarkyns svo sem sultur, rúgbrauð og nýupptekið grænmeti. Einnig verða til sölu húfur, treflar og prjónadúkkur ásamt öðru handverki.
Á markaðnum verður keppt um bragðbestu sultuna og eru gestir hvattir til þess að skrá sig í keppnina á netfangið [email protected]. Einnig verður svokallað „skiptiborð“ á markaðnum þar sem hægt verður að skipta á varningi s.s. grænmeti, sultutaui, handverki eða lopasokkum.
Boðið verður upp á kaffi og heitt súkkulaði á sanngjörnu verði og landnámsgeitur- og hænur koma m.a. í heimsókn.
Markaðurinn er haldinn í hlöðu sem stendur við Egilsgötu 8 eða bæinn Minni-Voga í Vogum á Vatnsleysuströnd og hefst hann stundvíslega kl. 12:00 á morgun laugardaginn 17. september.