Hagsmunamál ferðaþjónustunnar og erlend markaðssetning
	Þann 15. október kl. 15, verður haldinn fundur þar sem hagsmunaðilar í ferðaþjónustu koma saman til skrafs og ráðagerða og fjalla um brennandi mál í ferðaþjónustu. Á fundinum ætlar Íslandsstofa að kynna áherslur í markaðssetningu erlendis og markaðsverkefnið Ísland- allt árið á komandi vetri og Samtök ferðaþjónustunnar mun fara yfir helstu hagsmunamál greinarinnar.
	
	Fundurinn eru öllum opinn, og er sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á erlendri markaðssetningu og hagsmunamálum ferðaþjónustunnar.
	
	Fundurinn fer fram í Svaninum, fundarsal Heklunnar að Grænásbraut 506, Ásbrú.
	
	Skráning á fundinn fer fram hjá Markaðsstofu Reykjaness á netfangið [email protected].

 
	
				

 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				