Hagnaður Spkef tæpir 4,7 milljarðar króna

Vaxtatekjur Sparisjóðsins námu 4.240,5 m.kr. en það er 67,8% hækkun frá árinu 2005. Vaxtagjöld hækkuðu einnig, eða um 117,8% og námu 3.595,5 m.kr. árið 2006. Hreinar vaxtatekjur námu því 645 m.kr. samanborið við 875,8 m.kr. árið 2005 sem er lækkun um 26,4%. Vaxtamunur, þ.e. hreinar vaxtatekjur í hlutfalli af meðalstöðu fjármagns var 1,62% árið 2006 en 3,0% árið 2005.
Aðrar rekstrartekjur hækkuðu um 4.842,7 m. kr. og voru 6.613,6 m.kr. árið 2006. Munar þar mest um hækkun á gengishagnaði upp á 3.744,3 m.kr. og tekjur af hlutabréfum og öðrum eignarhlutum upp á 1.037,2 m. kr.
Önnur rekstrargjöld námu alls 1.257,9 m.kr. og jukust um 36% frá árinu áður. Laun og launatengd gjöld jukust um 39,2%. Annar almennur rekstrarkostnaður jókst um 34,7%. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af niðurstöðu efnahagsreiknings var 2,6% en var 2,9% árið 2005.
Kostnaðarhlutfall árið 2006 var 17,3% á móti 35% árið 2005. Framlag í afskriftareikning útlána var 383,8 m.kr. en var 329,4 m.kr. árið 2005. Sem hlutfall af niðurstöðu efnahagsreiknings var framlagið 0,8% en var 1,04 árið 2005.
Afskriftareikningur útlána nam í árslok 1,87% af útlánum en var 2,06% árið áður. Heildarinnlán í Sparisjóðnum ásamt lántöku námu í lok árins 2006 33.081,7 m.kr. og er aukningin 32,7% á milli ára. Útlán Sparisjóðsins ásamt markaðsskuldabréfum námu 35.027,1 m.kr. í lok ársins 2006 og höfðu aukist um 9.410,1 m.kr. eða um 36,7%.
Í lok ársins var niðurstöðutala efnahagsreiknings 47.969,4 m.kr. og hafði hún hækkað um 16.192,1 m.kr. eða 51%. Eigið fé Sparisjóðsins í lok ársins 2006 nam 9.272 m.kr. og hefur eigið fé aukist um 5.508,7 m.kr. eða 146,4%.
Á árinu 2006 var stofnfé aukið um 500 m.kr að nafnvirði og var 1.100 m. kr í árslok sem svarar til 2.166,2 m. kr að uppreiknuðu nafnvirði. Þá var einnig samþykkt heimild til stjórnar að auka stofnfé allt að 700 m.kr að nafnvirði og hefur stjórn tekið ákvörðun um að nýta heimildina í mars - apríl 2007.
Eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins samkvæmt CAD-reglum er 14,17% en var 12,42% á sama tíma árið áður.
Áætlanir fyrir árið 2007 gera ráð fyrir góðri afkomu en þó ekki eins góðri og árið 2006. Í lok árins 2006 var stofnfé 1.100 milljónir að nafnvirði og voru stofnfjáraðilar 617 talsins, að því er segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands
Af vef mbl.is www.mbl.is