Hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík 738 milljónir
Hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík fyrir árið 2003 nam 738,2 m.kr. króna fyrir skatta samanborið við 140,7 m. kr. árið áður, en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sparisjóðnum í Keflavík. Hagnaður eftir skatta nam 604,1 m. kr. samanborið við 117,6 m. kr. árið áður. Arðsemi eigin fjár var 33,3%. Þessa hagnaðaraukningu milli ára má að mestu rekja til gengishagnaðar af annarri fjármálastarfsemi. Aðalfundur Sparisjóðsins í Keflavík verður haldinn föstudaginn 12. mars n.k. Stjórn sjóðsins leggur til að greiddur verði 8,5% arður á uppreiknað stofnfé. Auk þess sem nýttar verði heimildir laga um endurmat og viðbótarendurmat þannig að nafnávöxtun stofnfjár verði 19,17%.
Helstu niðurstöður úr rekstri og efnahag:
· Hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík árið 2003 nam 738,2 m.kr. króna fyrir skatta samanborið við 140,7 m. kr. árið 2002.
· Hagnaður eftir skatta nam 604,1 m. kr. samanborið við 117,6 m. kr. árið 2002.
· Arðsemi eigin fjár var 33,3%.
· Vaxtatekjur Sparisjóðsins námu 1.819,5 m.kr. en það er 1,4% hækkun frá árinu 2002.
· Vaxtagjöld hækkuðu einnig, eða um 3,3% og námu 1.074,9 m.kr. árið 2003
· Hreinar vaxtatekjur námu því 744,6 m.kr. samanborið við 754,4 m.kr. árið 2002 sem er lækkun um 1,3%.
· Vaxtamunur, þ.e. hreinar vaxtatekjur í hlutfalli af meðalstöðu fjármagns var 3,77% árið 2003 en 3,83% árið 2002.
· Aðrar rekstrartekjur jukust um 811 m. kr. og voru 1.089 m.kr. árið 2003.
· Önnur rekstrargjöld námu alls 805,7 m.kr. og jukust um 7,1% frá árinu áður. Laun og launatengd gjöld jukust um 11% og þar af voru bein laun 7,06%. Annar almennur rekstrarkostnaður jókst um 4,6%. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af niðurstöðu efnahagsreiknings var 4% sem er það sama og árið 2002.
· Kostnaðarhlutfall árið 2003 var 43,9% á móti 72,9% árið 2002.
· Framlag í afskriftareikning útlána var 290 m.kr. en var 138,9 m.kr. árið 2002. Sem hlutfall af niðurstöðu efnahagsreiknings var framlagið 1,45% en var 0,73% árið 2002.
· Afskriftareikningur útlána nam í árslok 2,04% af útlánum en var 1,82% árið áður.
· Heildarinnlán í Sparisjóðnum ásamt lántöku námu í lok árins 2003 15.599 m.kr. og er aukningin 8,6% á milli ára.
· Útlán Sparisjóðsins ásamt markaðsskuldabréfum námu 16.451,2 m.kr. í lok ársins 2003 og höfðu aukist um 563,9 m.kr. eða um 3,5%.
· Í lok ársins var niðurstöðutala efnahagsreiknings 19.992,8 m.kr. og hafði hún hækkað um 1.082 m.kr. eða 5,7%. Eigið fé Sparisjóðsins í lok ársins 2003 nam 2.358,8 m.kr. og hefur eigið fé aukist um 545,6 m.kr. eða 30,1%. Eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins samkvæmt CAD-reglum er 14,95% en var 10,54% á sama tíma árið áður.
· Áætlanir fyrir árið 2004 gera ekki ráð fyrir eins góðri afkomu og árið 2003 og skýrist það einkum af þeim gengishagnaði sem varð af annarri fjármálastarfsemi árið 2003.
· Í lok árins 2003 var stofnfé 600 milljónir og voru stofnfjáraðilar 560 talsins.
· Við gerð þessa ársreiknings er í meginatriðum fylgt sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður.
Sparisjóðurinn í Keflavík var stofnaður 1907 og hefur því þjónað Suðurnesjamönnum í 96 ár. Sparisjóðurinn rekur fimm afgreiðslur sem starfræktar eru í Keflavík, Njarðvík, Garði, Grindavík og Vogum. Höfuðstöðvar Sparisjóðsins eru í Keflavík og þar er Viðskiptastofa SPKEF einnig til húsa. Starfsmenn Sparisjóðsins eru um 73 talsins og bjóða þeir víðtæka fjármálaþjónustu fyrir viðskiptavini á öllum aldri.