Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Hagnaður Samkaupa rúmar 340 milljónir
Fimmtudagur 11. apríl 2013 kl. 09:50

Hagnaður Samkaupa rúmar 340 milljónir

Aðalfundur Samkaupa var haldinn 20. mars síðastliðinn. Velta Samkaupa og dótturfélagsins Búrs, var tæplega 22,7 milljarðar á árinu 2012 og jókst um tæp 10% frá fyrra ári. Hagnaður félagsins eftir skatta var rúmar 340 milljónir.

Samkaup reka 47 verslanir undir merkjum Nettó, Kaskó, Samkaup úrval og Samkaup strax, verslanirnar eru á 34 stöðum um allt land. Starfsmenn félagsins á árinu 2012 voru 866 í 502 stöðugildum.

Hluthafar Samkaupa voru 181 í lok árs 2012. Kaupfélag Suðurnesja ásamt dótturfélögum átti 62,8% hlut og Kaupfélag Borgfirðinga ásamt dótturfélagi átti 20,3%. Aðrir hluthafar áttu minna en 10% hver um sig.

Kaupfélag Suðurnesja var stofnað í Keflavík árið 1945 og nær starfssvæði þess nú yfir Suðurnesin, Hafnarfjörð, Garðabæ, Kópavog, Seltjarnarnes og Reykjavík. Félagar eru tæplega 4.000.

Kaupfélag Borgfirðinga var stofnað árið 1904 og nær félagssvæði þess frá Breiðafirði suður í Hvalfjörð. Félagar eru rúmlega 1.400.

Verslanir Samkaupa voru margar hverjar reknar áður af kaupfélögum. Samkaup hafa gert samninga við öll kaupfélög á starfssvæðum verslana félagsins, um afsláttarkjör fyrir félagsmenn kaupfélaga. Í dag notfæra sér meira en 30.000 félagar kaupfélaga um allt land þessi afsláttarkjör í verslunum Samkaupa.

Á aðalfundi Samkaupa voru eftirtaldir kosnir í stjórn félagsins:
Skúli Skúlason, formaður Reykjanesbæ.
Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson, varaformaður Dalvík.
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Reykjavík.
Margrét Katrín Erlingsdóttir, Selfossi.
Þorvaldur Tómas Jónsson, Borgarbyggð.

Framkvæmdastjóri Samkaupa er Ómar Valdimarsson. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Reykjanesbæ.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024