Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Hagnaður HS Orku hf. tæpir 1,2 milljarðar
Heildarhagnaður nam 1.193 milljónum á tímabilinu samanborið við hagnað upp á 75 milljónir á sama tímabili 2015.
Föstudagur 12. ágúst 2016 kl. 06:00

Hagnaður HS Orku hf. tæpir 1,2 milljarðar

- Samkvæmt árshlutareikningi fyrstu sex mánaða ársins

Stjórn HS Orku hf. samþykkti á fundi sínum í gær árshlutareikning fyrirtækisins fyrir fyrri helming ársins 2016. Heildarhagnaður nam 1.193 milljónum á tímabilinu samanborið við hagnað upp á 75 milljónir á sama tímabili 2015. Hagnaður tímabilsins nam 1.278 milljónum en á sama tímabili 2015 var hagnaður af rekstri 142 milljónir. Rekstartekjur námu 3.507 milljónum en voru í fyrra 3.824 milljónir. Helsta skýring á lækkun rekstrartekna er lækkun álverðs og minni sala rafmagns til fiskimjölsverksmiðja vegna lakrar loðnuvertíðar.

Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 874 milljónir króna en voru neikvæðir um 1.568 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Hækkun á virði afleiða (framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) er meginorsök breytingarinnar, en þeir voru jákvæðir um 841 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum 2016 en lækkuðu um 1.239 milljónir króna á sama tímabili 2015. Áhrif gengisbreytinga voru jákvæð um 150 milljónir en voru neikvæð um 282 milljónir á sama tímabili 2015.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Eiginfjárhlutfall 30. júní 2016 var 62,3 prósent en var 58,6 prósent í árslok 2015.