Hætt við að selja Ársól - pizzaofninn þó til sölu

„Þegar ég sá auglýsinguna í blaðinu varð mér eiginlega ekki um sel og ég hætti við, svo ég er ekki að selja. Ég og maðurinn minn rekum þetta saman, ég í búðinni og hann í pizzunum og við höfum ákveðið að selja pizzureksturinn". Ingibjörg segist vona að einhver úr Garðinum kaupi reksturinn svo þjónustan fari ekki úr byggðalaginu. „Það er mjög mikið að gera í pizzunum en okkur finnst við bara vera orðin of gömul í þetta. Eftir áramót ætlum við að beyta öllu hérna, leggja niður eldhúsið og opna þar kannski Handverksverkstæði, hver veit". Ingibjörg er því ekki á förum úr versluninni og bíður 15% afslátt af öllu í búðinni og Pizza Lopez fram að áramótum.