Miðvikudagur 3. mars 2004 kl. 11:25
Gullmoli á borði bæjarstjórnar

Í Víkurfréttum í október voru í fyrsta sinn kynntar frumteikningar og hugmyndir Steinþórs Jónssonar að verslunarmiðstöð í miðbæ Reykjanesbæjar. Á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag voru þessar hugmyndir og teikningar Verkfræðistofu Halldórs Guðmundssonar kynntar í framhaldi af kynningu í Umhverfis- og skipulagsráði 25. febrúar s.l. Sköpuðust nokkrar umræður um verkefnið en Jóhann Geirdal bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar spurði Steinþór um heildarstærð kjarnans í fermetrum talið og hvernig áhrif framkvæmd af þessari stærðargráðu hefði á svokallaða „lífæð“ bæjarins. Steinþór sagði að gert væri ráð fyrir viðbótarrými með tilkomu Gullmolans uppá rúma 8.000m2 en heildarstærð hans verður með núverandi húsnæði um 12.000m2 án bílakjallara. Taldi Steinþór Gullmolann vera góða tengingu við lífæðina og í raun styrkingu við hana. Árni Sigfússon bæjarstjóri sagði að fagmenn á þessu sviði væru þessu sammála og að verslunarkjarni væri spennandi kostur við bæjarkjarna en tilkoma Gullmolans myndi án efa styrkja lífæð bæjarfélagsins ef til byggingu hans kæmi.
Að sögn Steinþórs var fyrirtækið Gullmolinn eignarhaldsfélag stofnað 5. febrúar s.l. og hefur nú þegar farið fram töluverð undirbúningsvinna. „Fyrir utan bygginguna sjálfa liggja fyrir fjölmargar hugmyndir tengdu verkefninu sem nú er verið að skoða. Félagið hefur samið við Turn Key Consulting um gerð viðskiptaáætlunar en næstu skref verkefnisins munu ákvarðast af niðurstöðum hennar, vilja fjárfesta og framsýni þeirra aðila sem málinu tengjast,“ sagði Steinþór í samtali við Víkurfréttir.