Grímur Sæmundsen markaðsmaður ársins
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, hefur verið valinn markaðsmaður ársins. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson afhenti Íslensku markaðsverðlaunin í dag við hátíðlega athöfn á Hilton Reykjavík Nordica.
Var það samdóma álit dómnefndar að Grímur væri vel að þessum verðlaunum kominn fyrir faglegt og árangursríkt markaðsstarf. Hann hefur náð að byggja upp alþjóðlegt og arðbært vörumerki í ferðaþjónustu.
Grímur tileinkaði verðlaunin öllu því frábæra starfsfólki Bláa Lónsins sem á hverjum degi leggur sig alla fram við að gera upplifun okkar 600 þúsund gesta sem magnaðasta.
Mjög góð aðsókn var eins og áður á þennan viðburð enda vekur afhendingin ávallt athygli í íslensku viðskiptalífi og er þetta í 23. sinn sem Íslensku markaðsverðlaunin eru veitt. Ræðumaður dagsins var Ingólfur Guðmundsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Marels en Marel var markaðsfyrirtæki ársins 2012.
Dómnefnd á markaðsmanni ársins skipuðu:
Einar Einarsson, framkvæmdastjóri Capacent rannsókna
Elísabet Sveinsdóttir, forstöðumaður markaðssviðs Advania
Friðrik Larsen, lektor og formaður ÍMARK
Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs
Klara Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri ÍMARK
Kristján Geir Gunnarsson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Nóa Síríus og formaður dómnefndar
Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri NOVA
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins