Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Greysir Green leiðandi í verkefnum í Kína og á Filippseyjum
Mánudagur 9. febrúar 2009 kl. 10:45

Greysir Green leiðandi í verkefnum í Kína og á Filippseyjum


 
Samkomulag hefur tekist milli eigenda Enex um uppskiptingu félagsins. Uppskiptingin hefur verið staðfest á hluthafafundi í félaginu og af stjórnum stærstu eigendanna, Reykjavik Energy Invest (REI), dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur og Geysis Green Energy. Enex hefur verið í eigu Geysis að 70% og REI að 26,5%. Þá hefur nokkur fjöldi aðila átt smærri hlut í Enex.
 
Með samkomulaginu eykur Geysir hlut sinn í félaginu Enex Kína en það vinnur að uppbyggingu hitaveitna í Kína. Geysir er nú 75% hluthafi í Enex Kína og REI 25%. Þá yfirtekur Geysir að fullu verkefni Enex í Þýskalandi og verður þannig leiðandi aðili í þróun jarðvarmaverkefna í Þýskalandi í gegnum verkefnafélag Enex þar í landi og dótturfélag sitt Exorku.
 
REI yfirtekur eignarhlut Enex í Iceland America Energy, sem unnið hefur að þróun verkefna á sviði jarðhita, fyrst og fremst í Kaliforníu. Geysir mun áfram starfa af krafti í Bandaríkjunum þar sem félagið er leiðandi fjárfestir í tveim öðrum jarðhitafélögum.
 
Auk ofangreindra verkefna Enex, hafa REI og Geysir unnið saman að verkefnum á Filippseyjum í félaginu Envent. Með samkomulaginu mun Geysir eignast meirihluta í því félagi (80%) og tekur jafnframt við stjórn þess.
 
Ásgeir Margeirsson forstjóri Geysis Green Energy fagnar samkomulaginu og segir niðurstöðuna falla vel að þeim áherslum sem félagið hefur sett sér um virka þátttöku í vel skilgreindum verkefnum. „Við viljum einbeita okkur að verkefnum þar sem við höfum leiðandi hlutverki að gegna líkt og við erum að gera með verkefnunum í Kína og á Filippseyjum. Um leið hverfum við frá öðrum sem ekki falla eins vel að starfsemi félagsins. Jafnframt gefur samkomulagið okkur tækifæri til hagræðingar. Þannig sjáum við mikla samlegð með jarðvarmaverkefnum Enex og Exorku í Þýskalandi. Mestu skiptir að taka forystu þar sem hennar er þörf,“ segir Ásgeir í tilkynningu frá Geysi Green Energy.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024