HSS
HSS

Viðskipti

Góð jólaverslun
Laugardagur 27. desember 2008 kl. 12:26

Góð jólaverslun



Jólaverslun á Suðurnesjum virðist hafa verið góð miðað við litla könnun sem vf.is gerði meðal eigenda verslana.
Sturla Eðvarsson, framkvæmdastjóri Samkaupa segir menn sátta á þeim bænum. Mikill þungi hefði komið í jólaverslunina þegar leið á mánuðinn. Fleiri verslunareigendur á Hafnargötunni í Keflavík voru sáttir og sumir mjög ánægðir og sögðu að það hefði verið greinilegt að fólk hafi verslað heima fyrir þessi jól. „Mér fannst ég sjá það mjög greinilega að fólk veslaði meira hér heima fyrir þessi jól,“ sagði Lilja Valþórsdóttir í versluninni Cabo sem skartaði best skreytta jólaglugganum fyrir þessi jól. Sigurður Björgvinsson í K-sport var mjög ánægður með jólaverslunina og sama sama var uppi á teningnum hjá þeim systrum Kristínu og Hildi Kristjánsdætrum í Kóda. Víkurfréttir heyrðu af fleiri ánægðum verslunareigendum.
Í fyrsta skipti í að minnsta kosti áratug var veður mjög slæmt þegar leið á Þorláksmessu og var því ekki eins mikil stemmning í bænum eins og undanfarin ár. Jólasveinar og jólahljómsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar voru í vandræðum í rigningunni og rokinu en létu það samt á sig fá að spila jólalög og heilsa upp á börnin.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Kristín Kristjánsdóttir var ánægð með jólaverslunina.

Það voru biðraðir í Samkaupum á Þorláksmessu.