Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Góð afkoma Isavia á fyrri helmingi ársins
Þriðjudagur 17. september 2013 kl. 15:25

Góð afkoma Isavia á fyrri helmingi ársins

Afkoma Isavia á  fyrri helmingi ársins 2013 var góð og umfram áætlanir félagsins.  Rekstrartekjur samstæðunnar Isavia og dótturfélaganna Fríhafnarinnar og Tern Systems námu 8.920 milljónum króna, sem er 8% hækkun frá sama tímabili árið 2012.  Stærstan hluta tekjuaukningarinnar má rekja til fjölgunar farþega um Keflavíkurflugvöll sem var 18,4%. Tekjur af flugleiðsöguþjónustu vegna yfirflugs og umferðar til og frá Íslandi jukust um 3,6% frá fyrra ári.

Rekstrarhagnaður var 812 milljónir króna sem er 9,1% af tekjum samstæðunnar, heildarafkoma félagsins nam 1.367 milljónum króna og er þar tekjufærður gengishagnaður 1.089 milljónir króna.  Heildarafkoma félagsins fyrir sama tímabil árið 2012 var 88 milljónir króna en gjaldfært gengistap nam þá  208 milljónum króna.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Heildareignir félagsins voru  33,9 milljarðar króna í lok júní 2013  samanborið við 33,4 milljarða í lok síðasta árs.  Fjárfestingar félagsins á tímabilinu námu 1,2 milljörðum króna en áætlað er að  fjárfestingar ársins í heild verði um 2,3 milljarðar.  Helstu fjárfestingar eru endurbætur á Flugstöð Leifs Eiríkssonar, stækkun flughlaðs á Keflavíkurflugvelli, endurnýjun á veðurupplýsingarkerfum og  uppsetning á nýju staðsetningarkerfi til notkunar í  flugumferðarstjórn.

Lykiltölur úr hálfsársuppgjöri Isavia:

·         Tekjur: 8.920 millj. kr.

·         Rekstrarhagnaður: 811 millj. kr.

·         Hagnaður eftir skatta: 1.367 millj. kr.

·         Heildareignir: 33.884 millj. kr

·         Fjárfestingar: 1.230 millj. kr.

·         Eigið fé í lok tímabilsins: 13.015 millj. kr.

·         Eiginfjárhlutfall: 38,4%

Árshlutareikningur Isavia fyrir fyrri helming ársins 2013 var samþykktur af á stjórnarfundi 4. september. Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins.

„Hálfsársuppgjör Isavia sýnir að félagið er stöndugt og rekstur þess er tryggur,“ segir Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia. „Umsvif félagsins hafa aukist verulega undanfarin ár í takt við mikla aukningu ferðamanna, enda er félagið einn af lykilaðilum í íslenskri ferðaþjónustu.  Aukningin var þó ekki ófyrirséð og ráðist var í talsverðar fjárfestingar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar síðastliðinn vetur til þess að bæta flæði og auka þægindi flugfarþega.  Nýtt brottfararhlið var tekið í notkun í norðurbyggingu, svæðum í suðurbyggingu var breytt í biðsvæði farþega og verslunarsvæði stækkað og endurbætt. Auk endurbóta á flugstöðinni hefur verið ráðist í stækkun flughlaðsins og hafinn er undirbúningur að smíði  4.000  fermetra þjónustubyggingar sem hýsa mun flugvallarþjónustudeild undir einu þaki í nágrenni flugstöðvarinnar. Kostnaður við ofangreindar endurbætur er áætlaður alls um 3,5 miljarðar króna en gert er ráð fyrir að á næstu árum þurfi að veita á bilinu 5 – 10 milljörðum króna til stækkunar flugstöðvarinnar og endurbóta á flugbrautum. Það er því ljóst að til framtíðar litið þarf rekstur Isavia að standa undir miklum fjárfestingum svo tryggt sé að áætlaðri farþegaaukningu verði mætt með sóma.“