Gista ekki í Keflavík - Farþegum Air France öllum ekið til Reykjavíkur
Hótelin í Reykjanesbæ fá enga af þeim 232 farþegum sem urðu strandaglópar á Keflavíkurflugvelli í dag eftir að flugstjóri Boeing 777 farþegaþotu á leið til New York ákvað að lenda í Keflavík vegna veikinda sinna. Fram kom í fréttaskeyti frá AFP-fréttastofunni að flugvélin og farþegarnir yrðu á Íslandi í nótt og myndu halda áfram vestur um haf í fyrramálið.
Nægt hótelrými er á Suðurnesjum til að taka þennan fjölda í gistingu og víst er að á þriðja hundrað farþegar væru uppgrip bæði fyrir hótelin,veitingahús og verslanir á þessum árstíma í Reykjanesbæ. Farþegarnir fóru hins vegar allir á Icelandair-hótel í Reykjavík.