Geysir Green eykur hlut sinn í Enex

Í tilkynningu kemur fram að kaupverð hlutar Landsvirkjunar er 996 milljónir króna og að helmingshlut greiddur í reiðufé og helmingur með hlutafé í Geysi Green Energy. Við fyrirhugaðan samruna GEE og REI mun Landsvirkjun eignast hlut í REI á genginu 2,77, sem jafngildir helming af kaupverðinu. Landsvirkjun hefur síðan rétt til að selja bréf sín í REI eftir sex mánuði á sama gengi. Eins og áður hefur verið tilkynnt er sá samruni háður ákveðnum skilyrðum, m.a. samþykki samkeppnisyfirvalda. Ef skilyrði samrunans eru ekki uppfyllt munu seljendur fá söluverðið greitt að fullu í reiðufé.
Þá hefur GGE einnig keypt 2% hlut Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen í félaginu. Frá þessu er greint á mbl.is