Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Geysir Green Energy: Ólafur Jóhann Ólafsson nýr stjórnarformaður
Þriðjudagur 8. júlí 2008 kl. 14:45

Geysir Green Energy: Ólafur Jóhann Ólafsson nýr stjórnarformaður

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur og aðstoðarforstjóri Time Warner fjölmiðla-samsteypunnar og bandaríska fjárfestingarfélagið Wolfensohn & Company eru nýir hluthafar í Geysi Green Energy. Á hluthafafundi sem haldinn var í Reykjanesbæ í dag tóku Ólafur Jóhann Ólafsson og Adam Wolfensohn sæti í stjórn Geysis og var Ólafur Jóhann kjörinn formaður stjórnar. Ásgeir Margeirsson forstjóri félagsins segir mikinn feng í því að fá jafn öfluga og alþjóðlega virta fjárfesta og Ólaf Jóhann og Wolfensohn & Company til liðs við félagið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Geysi Green Energy sem fer hér á eftir.

Ólafur Jóhann Ólafsson hefur um árabil verið virkur þátttakandi í alþjóðlegu viðskiptalífi sem aðstoðarforstjóri Time Warner fjölmiðlasamsteypunnar frá árinu 1999 og áður sem forstjóri fjárfestingafyrirtækisins Advanta í Bandaríkjunum. Til hefur staðið um nokkurt skeið að Ólafur Jóhann Ólafsson kæmi inn í hluthafahóp Geysis og var aðkoma hans að félaginu síðast til skoðunar haustið 2007. Nú kemur hann að félaginu ásamt Wolfensohn & Company sem er fjárfestinga- og ráðgjafafyrirtæki í eigu James Wolfensohn fyrrum bankastjóra Alþjóðabankans og fleiri aðila.

Mikil trú á félaginu
Ólafur Jóhann Ólafsson segist fjárfesta í Geysi vegna þess að hann hafi mikla trú á fyrirtækinu og þeim verkefnum sem það er að fást við. Hann segir mikil framtíðartækifæri liggja í nýtingu vistvænnar orku sem spennandi verði að takast á við á næstu misserum og árum. „Geysir Green býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á þessu sviði og hefur á tiltölulega stuttum tíma náð að festa sig í sessi sem eftirsóttur samstarfsaðili í jarðhitaverkefnum víða um heim.“

Adam Wolfensohn, framkvæmdastjóri Wolfensohn & Company, segir að starfsemi Geysis falli mjög vel að þeim áherslum sem fjárfestingastefna þeirra byggi á. Wolfensohn & Company hefur komið að ýmsum verkefnum í orkuiðnaði sem tengjast endurnýjanlegri orku, sérstaklega verkefnum í þriðja heims löndum. Adam Wolfensohn, sonur James Wolfensohn, er sérfræðingur á sviði umhverfismála en hann hefur stýrt sjóðum Wolfensohn fjölskyldunnar sem snúa að hreinni orkuframleiðslu og að stýrt verðbréfasafni hennar. Þá hefur hann meðal annars framleitt heimildarmynd um umhverfismál, „Everything's Cool“, sem frumsýnd var á Sundance kvikmyndahátíðinni í fyrra og séð um að kolefnisjafna tónleikaferðalag hljómsveitarinnar Pearl Jam árið 2003 gegnum samtökin Conservation International.

Fjárhagur Geysis eflist
Með innkomu nýrra hluthafa eflist fjárhagur félagsins. Á síðustu vikum hefur eigið fé Geysis verið aukið um rúma fimm milljarða íslenskra króna, en þar af eru um tveir milljarðar frá Ólafi Jóhanni og Wolfensohn . Á hluthafafundinum kom fram að hlutafé félagsins hefur verið aukið um sem svarar til 55 milljónum bandaríkjadala, auk þess að við yfirtöku á dótturfélaginu Exorku International í Þýskalandi, var minnihlutaeigendum þar greitt með hlutabréfum í Geysi að andvirði um 1.200 milljónir króna. Í undirbúningi er enn frekari fjármögnum félagsins og sér fyrirtækjaráðgjöf Glitnis um þann þátt. Þá hefur verið unnið í endurfjármögnun lána og hefur sú vinna gengið vel.

Helstu eigendur Geysis Green Energy eru í dag: Atorka, (Renewable Energy Resources) 39,7%, Glacier Renewable Energy Fund (Glitnir o.fl.) 38,6%, VGK Invest (Mannvit) 8,8%, Wolfensohn & Co. 3,9%, Geodynamics 2,8% og Ólafur Jóhann Ólafsson, 2,6%. Nýja stjórn Geysis skipa: Ólafur Jóhann Ólafsson, formaður, Adam Wolfensohn, Einar Þorsteinsson, Eyjólfur Árni Rafnsson, Magnús Jónsson, Magnús Bjarnason og Þorsteinn Vilhelmsson.

Ljósmyndir:

(Efri mynd) Ásgeir Margeirsson forstjóri GGE, Adam Wolfensohn og Ólafur Jóhann Ólafsson, stjórnarformaður GGE.
 
(Neðir mynd) Stjórn Geysir Green Energy í Keflavík nú eftir hádegið. Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson