Geysir Green Energy eignast meirihluta í HS Orku
Geysir Green Energy, Reykjanesbær og kanadíska jarðhitafyrirtækið Magma Energy Corporation hafa lokið viðskiptum vegna kaupa Geysis á 34% hlut í HS Orku af Reykjanesbæ. Ennfremur kaupir Magma 8,6% hlut í HS Orku af Geysi. Þetta kemur fram í frétt á viðskiptasíðu mbl.is
Með sölunni lýkur fyrri áfanga af tveimur í sölu Geysis á alls 10,8% hlutafjár í HS Orku til Magma fyrir rúma þrjá milljarða króna sem félagið staðgreiðir og mun hafa áhrif til styrkingar á gengi krónunnar, að því er fram kemur í tilkynningu.
Eftir sölu hlutarins í dag á Geysir 57,4% hlutafjár í HS Orku en seinni áfangi viðskiptanna er sala á 2,2% hlut að auki til Magma í byrjun næsta árs. Að þeim viðskiptum loknum mun Geysir eiga 55,2% hlut í HS Orku.
Kaup Magma á hlut í HS Orku koma í kjölfar samkomulags Reykjanesbæjar og Geysis um breytt eignarhald á HS Orku og HS Veitum. Með því samkomulagi eignaðist Geysir nær allan hlut Reykjanesbæjar í HS Orku en lét á móti hlut sinn í HS Veitum. Reykjanesbær á nú 66,75% hlut í HS Veitum og 0,75% hlut í HS Orku. Áður hefur Reykjanesbær keypt allar auðlindir HS Orku af félaginu og leigir því nýtingarréttinn, og tryggir þannig eignarhaldið á auðlindunum og að samfélagið njóti áfram arðs af nýtingu þeirra, segir í tilkynningunni.
„Viðskipti þessi eru grundvöllur þess að gera HS Orku kleift að sækja sér fjármagn til fyrirhugaðra framkvæmda við uppbyggingu gufuaflsvirkjana á Suðurnesjum. Vegna veikingar íslensku krónunnar hafa erlendar skuldir HS Orku hækkað umtalsvert. Þar af leiðandi hefur eiginfjárhlutfall félagsins lækkað niður fyrir þau lágmörk sem kveðið er á um í lánasamningum félagsins. Félagið hefur nú náð samkomulagi við tvo af þremur lánadrottnum sínum og samningar við þann þriðja eru á lokastigi,“ segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis, í tilkynningunni.