Bygg
Bygg

Viðskipti

Geirmundur bankaráðsformaður Sparisjóðabanka Íslands hf.
Föstudagur 17. október 2008 kl. 14:44

Geirmundur bankaráðsformaður Sparisjóðabanka Íslands hf.


Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík, verður formaður bankaráðs Sparisjóðabanka Íslands. Icebank hf. hefur tekið upp sitt fyrra nafn og er lögheiti hans er nú Sparisjóðabanki Íslands hf. Hér er einungis um nafnabreytingu að ræða sem hefur engin áhrif á eignarhald bankans. Ákvörðun um þetta var tekin á hluthafafundi bankans í dag 17. október. Hluthafafundurinn kaus jafnframt nýtt bankaráð. Sparisjóðabanki Íslands hf. er að langstærstum hluta í eigu sparisjóðanna. Annar Suðurnesjamaður, Steinþór Jónsson hótelstjóri, skipar einnig bankaráð Sparisjóðabanka Íslands.
Nýtt bankaráð Sparisjóðabankans er þannig skipað:

Bílakjarninn
Bílakjarninn



Aðalmenn

Ásgeir Sólbergsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Bolungarvíkur
Bernhard Þór Bernhardsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Mýrarsýslu
Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Keflavíkur
Ólafur Elísson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Vestmannaeyja
Steinþór Jónsson, hótelstjóri Hótel Keflavík



Varamenn

Árni Harðarson, lögmaður
Einar Þór Sverrisson, lögmaður
Gestur Jónsson, hæstaréttarlögmaður
Geir Gestsson, lögmaður
Hulda Dóra Styrmisdóttir, ráðgjafi

Formaður stjórnar Sparisjóðabankans er Geirmundur Kristinsson.

Sparisjóðabankinn hefur frá stofnun árið 1986 verið reikningsbanki (seðlabanki) sparisjóðanna og frá ársbyrjun 1990 hefur hann verið þjónustubanki þeirra á sviði erlendra viðskipta, greiðslumiðlunar og erlendrar fjármögnunar.


Bankinn mun, í endurskipulagningu innlends fjármálakerfis, leggja höfuðrækt við hlutverk sitt gagnvart sparisjóðum landsins og styðja við samkeppnishæfni og auka rekstarhagkvæmni þeirra með hvers kyns samnýtingu á starfsþekkingu og viðskiptatengslum, innlendum og erlendum. Hinn mikli þekkingar- og tengslaauður sem Sparisjóðabankinn býr að, sem og þéttriðið net erlendra samstarfsbanka hans um alla Evrópu, Austur Asíu og í Bandaríkjunum, er órjúfanlegur hluti af daglegum rekstri sparisjóða landsins. Með nafnabreytingunni eru þau tengsl undirstrikuð enn frekar. Eftir sem áður mun bankinn nota nafnið Icebank í erlendum viðskiptum eins og gert hefur verið allt frá stofnun hans.


Sparisjóðabankinn mun áfram sinna viðskiptum við stærri fyrirtæki og fjármálastofnanir innanlands og utan en verður ekki, frekar en hingað til, í viðskiptum við almenning.

,,Við höfum fundið mjög mikinn stuðning við sparisjóðina og Sparisjóðabankann frá stjórnvöldum, ráðuneytum, Seðlabanka Íslands, sveitarfélögum og einstaklingum í því mikla ölduróti sem nú er á fjármálamörkuðum heima og heiman. Til þess að undirstrika afdráttarlaust hin nánu tengsl sem bankinn hefur við daglega starfsemi sparisjóðanna, og til að endurspegla það hlutverk bankans að annast fyrir alla sparisjóðina erlenda greiðslumiðlun og ýmis konar erlend viðskipti, auk annarra verkefna sem hagkvæmt er að vinna miðlægt, var ákveðið að endurvekja hið gamla nafn hans. Við tökum þetta hlutverk okkar mjög alvarlega á þessum erfiðu tímum. Aðaláhersla okkar er á þjónustu við sparisjóðina og viðskiptavini þeirra í innlendri og erlendri greiðslumiðlun og í öðrum gjaldeyristengdum viðskiptum. Um þessar mundir erum við eini viðskiptabankinn sem er með opin viðskiptasambönd við erlenda banka og getum þannig veitt viðskiptavinum okkar og sparisjóðanna heildstæða þjónustu í erlendum viðskiptum án þess að viðskiptavild okkar erlendis hafi beðið hnekki.“ segir Agnar Hansson, bankastjóri Sparisjóðabankans.