Bygg
Bygg

Viðskipti

Gamli BoggaBar tekur stakkaskiptum
Þriðjudagur 7. október 2008 kl. 10:26

Gamli BoggaBar tekur stakkaskiptum



Systkinin Jón og Benedikta Ben hafa tekið við rekstri Bogga Bars við Víkurbraut í Keflavík og jafnframt breytt nafninu í Skyndi-Barinn. Miklar breytingar eru framundan hjá nýjum rekstraraðilum og t.a.m. verður þjónustustigið aukið til mikilla muna og gæðin ávallt höfð í fyrirrúmi.


Þá verður í fyrsta skipti á Suðurnesjum hægt að kaupa Boost í gegnum bílalúgu, en Boost ere inn alhollasti skyndibiti sem fáanlegur er. Fyrir þá sem ekki vita hvað Boost er, þá er hann hrærður skyrdrykkur, blandaður með ávöxtum eða hrísmjólk fyrir þá sem ekki kæra sig um skyr. Einnig er boðið upp á að setja aukaprótein fyrir þá sem það vilja.


Í samtali við Víkurfréttir sagði Jón Ben að um síðustu helgi var tekinn upp nýr og beturumbættur matseðill. Þar má m.a. finna hamborgara á amerískan, máta hrein gæði í gegn, eins og Jón nefnir það. Þá verður einnig verður boðið upp á mexíkóskar samlokur og kaffi beint í bílinn ásamt ýmsu örðu nýju. Þá er stefnt að því að vera með tilboð í hverri viku. Þau Jón og Benedikta segja fyrirtækið vera spennandi verkefni og horfa björtum augum til framtíðart.

Á myndinni eru f.v. Jón Ben ásamt syni sínum Benedikt og Benedikta ásamt dætrum sýnum Lovísu og Guðbjörgu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn