Bygg
Bygg

Viðskipti

Fyrsta flug Iceland Express í fyrramálið
Miðvikudagur 26. febrúar 2003 kl. 20:01

Fyrsta flug Iceland Express í fyrramálið

Daglegt flug Iceland Express til London og Kaupmannahafnar hefst í fyrramálið. Haldið verður til Kaupmannahafnar kl. 8.30 og til London kl. 16. Sala farmiða, sem hófst þann 9. janúar, hefur gengið ákaflega vel. Tugþúsundir sæta hafa verið bókuð og er uppselt í nokkrar brottfarir. Flugvél Iceland Express kom til Keflavíkur síðdegis og var tekið á móti henni með viðhöfn. Áhöfnin fékk blóm og blómarósir brostu fyrir ljósmyndara framan við vélina á flughlaðinu við Leifsstöð. Alvaran hefst síðan af fullum krafti á morgun.Bókunarhlutfall á Netinu er mjög hátt, eða 76% allra bókana. Þótt markaðsstarf Iceland Express í Bretlandi og Danmörku sé vart byrjað, þá kemur um 30% allra netbókana erlendis frá.

Í tilefni af fyrsta fluginu koma 33 breskir blaðamenn hingað til lands þann 28. febrúar. Einnig hefur verið samið við fjölda breskra fjölmiðla um að kynna Ísland og Iceland Express gegn því að lesendur, áhorfendur eða hlustendur fái ferðir til Íslands í vinning. Ennfremur er verið að skipuleggja viðamikla auglýsingaherferð til að fjölga ferðamönnum utan háannatímans.

Ferðamönnum frá Bretlandi fjölgaði um 30 þúsund þá mánuði sem breska lágfargjaldafélagið Go flaug hingað. Því er ljóst að mikill grundvöllur er fyrir aukningu erlendra ferðamanna frá Bretlandi, ekki síst vegna þess hve lágfargjaldafélög eru þar orðin almennur ferðamáti.

Jafnframt er ljóst að mjög margir Íslendingar hafa uppgötvað þá fjölbreyttu möguleika sem bjóðast á ódýru flugi frá Stansted flugvelli í London með lágfargjaldafélögum. Um helmingur af bókunum á söluskrifstofu Iceland Express er vegna framhaldsferða frá Stansted.

Mikil eftirvænting er vegna flugs Iceland Express frá Kaupmannahöfn. Fjöldi danskra, sænskra og norskra ferðaskrifstofa hefur samið við Iceland Express um að selja ferðir á þeim lágu fargjaldöldum sem nú bjóðast í fyrsta sinn í áætlunarflugi hingað til lands. Þá hefur Iceland Express samið við einn ferðaheildsala um samtals 5.600 sæti með erlenda ferðamenn í flugi frá Kaupmannahöfn í sumar.

Breska flugfélagið Astraeus annast flugrekstur Iceland Express. Vinna við að mála Boeing 737 þotu félagsins með litum og merkjum Iceland Express hefst í dag og kemur vélin til landsins þann 26. febrúar. Breskir flugmenn annast flugið til að byrja með, en yfirflugstjóri Astraeus hefur átt viðræður við íslenska flugmenn um að koma til starfa hjá félaginu til að annast flugið fyrir Iceland Express. Áhöfn í farþegarými er íslensk og alls hafa 15 flugliðar verið ráðnir.

Iceland Express er lágfargjaldafélag með sambærilegt rekstrarfyrirkomulag og þau félög sem hafa verið að ryðja sér til rúms í Evrópu. Áhersla er lögð á hagkvæmni og lágan kostnað á öllum sviðum til að geta boðið lág fargjöld alla daga á öllum leiðum. Svonefnd sunnudagaregla tíðkast ekki hjá Iceland Express, þannig að fargjöld bjóðast á lágu gjaldi óháð því hvort ferðalagið stendur í skemmri eða lengri tíma. Þetta er sérstaklega hentugt fyrir fólk í stuttum viðskiptaferðum á virkum dögum, en yfirleitt hafa aðeins mjög dýr viðskiptafargjöld staðið því til boða vegna sunnudagareglunnar.
Bílakjarninn
Bílakjarninn