Frumsýnir nýjan Toyota Corolla
Toyota í Reykjanesbæ frumsýnir nú um helgina nýjan Toyota Corolla. Nýja Corollan er stærri en áður þar sem glæsileg hönnun fær að njóta sín. Innanrýmið er meira en áður og mikið lagt upp úr fallegri og stílhreinni innréttingu með þægindi og öryggi í fyrirrúmi. Þá er bílinn sagður hafa framúrskarandi aksturseiginleika.
Opið er til kl. 16 í dag, laugardag og á sunnudag frá kl. 13 – 16.
Mynd: Frá sýningarsal Toyota Reykjanesbæ í dag. VF-mynd: elg