Frumkvöðlahugmyndin filma.is fær góðar viðtökur
Fyrir rúmu ári síðan fóru tveir ungir Suðurnesjamenn, þeir Erlingur Þorsteinsson og Magnús M. Stefánsson, af stað með frumkvöðlahugmynd sem á dögunum varð að veruleika þegar vefnum filma.is var hleypt af stokkunum. Viðtökur hafa verið langt umfram væntingar, að sögn þeirra félaga.
Þeir félagar stofnuðu fyrirtækið Moon ehf utan um hugmyndina og unnu að þróun hennar í samstarfi við ýmsa aðila á Suðurnesjum, s.s. Dacoda og Guðmund Sigurðsson. Þeir kynntu hugmyndina helstu dreifingaraðilum myndefnis á Íslandi sem tóku henni vel og hafa Sambíóin verið helsti samstarfsaðilinn.
Vefurinn er eins konar vídeóleiga á netinu þar sem notendur kaupa inneign sem þeir nota síðan til að leiga eða eiga kvikmyndir og þáttaseríur eftir atvikum. Á næstunni verður vefurinn útvíkkaður með stórauknu úrvali efnis. Þá er unnið að því að auka möguleika notenda til að horfa á kvikmyndaefni, t.d. í símanum.
Sjá nánar í næstu Víkurfréttum.
--
VFmynd/elg - Erlingur Þorsteinsson og Magnús M. Stefánsson hafa bækistöðvar á Ásbrú þar sem þeir hafa unnið að hugmyndinni.