Bygg
Bygg

Viðskipti

Fróðlegt námskeið Íslandsbanka
Sunnudagur 4. desember 2005 kl. 14:58

Fróðlegt námskeið Íslandsbanka

Fjölmenni var á fróðlegu námskeiði Íslandsbanka sem var haldið í Íþróttaakademíunnin í Reykjanesbæ í gær.

Þar var farið yfir flest það sem snýr að fjármálum fjölskyldunnar, svo sem sparnað, húsnæðiskaup, gengisáhættu, tryggingar, fjárfestingar og lífeyrissparnað. Markmiðið er að þátttakendur gangi út af námskeiðinu með heildstæða yfirsýn yfir fjármálin sín. Leiðbeinandi er Þór Clausen, viðskiptafræðingur og forstöðumaður Símenntar Háskólans í Reykjavík.

Fullbókað var á námskeiðið, en mikil aðsókn hefur verið á þessi námskeið sem Íslandsbanki hefur haldið út um allt land að undanförnu og verða sennilegast fleiri eftir áramótin.
Bílakjarninn
Bílakjarninn