Bygg
Bygg

Viðskipti

Framleiða krem úr sjávarfangi og lækningajurtum
Guðrún Marteinsdóttir og Elín Þorsteinsdóttir hjá Taramar.
Laugardagur 19. mars 2016 kl. 06:00

Framleiða krem úr sjávarfangi og lækningajurtum

„Þetta byrjaði sem áhugamál en er nú farið að taka yfir flest annað,“ segir Guðrún Marteinsdóttir, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands og frumkvöðullinn á bak við fyrirtækið Taramar. Krem frá fyrirtækinu Taramar eru framleidd í Sandgerði komu fyrstu vörurnar á markað í október síðastliðnum. Á dögunum setti fyrirtækið fjórðu vöruna á markað sem er næturkrem. Elín Þ. Þorsteinsdóttir er markaðsstjóri Taramar og saman annast hún og Guðrún daglegan rekstur fyrirtækisins. Framleiðsla kremanna fer fram í Sandgerði en skrifstofan er í Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Báðar hafa þær Guðrún og Elín sterka tengingu til Suðurnesja. Eiginmaður Guðrúnar, Kristberg Kristbergsson, er úr Grænásnum. Elín ólst upp í Keflavík og er dóttir Þorsteins Kristinssonar, grunnskólakennara og Helgu Þorkelsdóttur. „Það var vel til fundið að finna framleiðslunni stað í Sandgerði. Þar er mikil þekking til staðar enda hafa verið gerðar rannsóknir í Þekkingarsetrinu um árabil. Þá höfum við einkar hentungt húsnæði í Vörðunni,“ segir Guðrún. Starfsmenn Taramar eru samtals átta og nú styttist í að þörf verði á fólki í hlutastörf við framleiðsluna í Sandgerði.

Afrakstur áralangra rannsókna
Guðrún hefur unnið að þróun húðvaranna frá árinu 2005 og eru þær afrakstur áralangra rannsókna hennar og samstarfsfólks við Háskóla Íslands. Hún segir sífellt fleiri gefa því gaum hvaða efni snyrtivörur innihaldi enda eru vörur Taramar framleiddar eftir hugmyndafræði „slow cosmetics“ þar sem gæði ráða för fremur en magn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Því miður er það svo að margar snyrtivörur innihalda efni sem eru hreinlega skaðleg. Sum hver eru jafnvel talin valda krabbameini og önnur eru undir sterkum grun um að klofna í formalin þegar þau eru borin á húðina.  Það er talið að konur sem nota húðvörur að staðaldri getið tekið allt að tvö til þrjú kíló af efnum upp í gegnum húðina á  ári hverju. Þetta eru auðvitað ekki allt hættuleg efni en mörg af erfiðustu efnunum, svo sem hin eiginlegu rotvarnarefni, eru oft tekin hratt upp í gegnum húð,“ segir Guðrún. Vandamálið er að almennt þá þekkji neytendur ekki þessi efni og eiga erfitt með að forðast þau. Þetta varð hvatinn að því að  þessi vinna fór af stað og útkoman eru  afburða hreinar og öruggar húðvörur sem byggja á lífvirkum efnum úr sjávarfangi og lækningajurtum. „Lífvirku efnin í kremunum frá Taramar koma úr þörungum sem eru handtíndir á hreinum svæðum í Breiðafirði og úr lækningajurtum frá Móður jörð. Vörurnar eru sérstakar að því leiti að þær hafa mikla virkni og eru mjög hreinar og byggja á nýsköpun og rannsóknum,“ segir Guðrún.

Nota engin hefðbundin rotvarnarefni
„Lífvirku efnin sem við höfum rannsakað og einangrað eru mjög hvarfgjörn og þola illa sólarljós. Því lögðum við mikla áherslu á það við hönnun umbúða að þessi efni væru varðveitt og að neytandinn fengi að njóta eiginleika þeirra eins og þau væru ný. Því eru Taramar vörurnar framreiddar í svörtu gleri. Þá innihalda kremin frá Taramar ekki nein hefðbundin rotvarnarefni né önnur efni sem geta haft neikvæð áhrif á húðina eða starfsemi líkamans,“ segir Guðrún. 

Endingartími kremanna frá Taramar er tiltölulega stuttur, eða um sjö til ellefu mánuðir en eftir þann tíma fer lífvirknin dvínandi.

Hafa fengið góðar móttökur
Elín Þorsteinsdóttir, markaðsstjóri Taramar, segir viðtökurnar hafa verið góðar, enda höfði kremin til breiðs hóps. „Annars vegar er það fólk sem kýs hreinar og öruggar vörur og hins vegar fólk sem vill tæknilegar vörur með mikilli virkni og sýnilegum árangri.“ Hún segir flesta viðskiptavinina vera konur en að þó nokkrir karlar séu einnig meðal viðskiptavinanna og þá oft karlar sem tengjast þeim konum sem nota vörurnar. „Við höfum heyrt frá ótalmörgu fólki sem er með húðvandamál og hefur ekki fundið krem við hæfi en hefur getað notað vörurnar frá Taramar og það er mjög ánægjulegt,“ segir hún.

Eignarhaldsfélag Suðurnesja er kjölfestufjárfestir í Taramar. Nýjar leiðir hafa verið farnar í markaðssetningu og byggjast á svokölluðum B-hluthöfum. „Þá fjárfestir fólk í fyrirtækinu fyrir að lágmarki 100.000 krónur og nýtur arðs af fjárfestingunni og ýmissa fríðinda, eins og að hafa kost á því að versla vörurnar á lægra verði en gengur og gerist í búðum. Í hópnum er einnig fólk sem prufar vörurnar á þróunarstigi,“ segir Elín. B-hluthafarnir eru nú hátt í 200 og segir Elín þá gegna veigamiklu hlutverki. „Hópurinn breiðir út hróður kremanna og hefur reynst mjög öflugt markaðstæki. Þannig hafa skapast góð tengsl  á milli fyrirtækisins og þessara eigenda sem skila sér í miklu umtali og útbreiðslu upplýsinga, meðal annars í gegnum Facebook-síðu Taramar.“