Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Viðskipti

Fosföt leyfð í saltfiski
Föstudagur 22. nóvember 2013 kl. 08:59

Fosföt leyfð í saltfiski

Evrópusambandið hefur fallist á óskir saltfiskframleiðenda um að nota fosföt við framleiðslu sína. Þetta kemur fram í frétt á ruv.is. Fosfat fyrirbyggir að fiskurinn gulni og þráni, og tryggir þannig að hærra verð fáist fyrir hann. Þetta eru mjög jákvæðar fréttir en sjávarúvegsfyrirtæki í Grindavík eru stærstu útflytjendur á saltfiski á Íslandi. Evrópusambandið var áður búið að banna að nota fosföt eins og lesa má hér.

Íslenskir saltfiskframleiðendur hafa um nokkurt skeið barist fyrir því að fá að nota fosföt í fiskinn. Þeim var gert að hætta notkun efnanna árið 2010 eftir að þeir urðu uppvísir að því að nota þau í óleyfi og án þess að tilgreina þau á umbúðum. Matvælastofnun hafði séð í gegnum fingur sér vegna óvissu um hvort fosföt væru aðeins tæknilegt hjálparefni við vinnsluna eða aukaefni sem neytandinn innbyrðir.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Vísindaráð ESB reyndist ósammála saltfiskframleiðendum og taldi fosföt aukaefni og því var notkun þeirra óheimil. Þau eru leyfð í ýmsan mat en lentu á sínum tíma ekki inni á lista yfir leyfileg aukaefni í saltfiski enda voru saltfiskframleiðendur þá ekki byrjaðir að nota efnin. Það tók langan tíma að fá fosföt inn á listann og á meðan óttuðust íslenskir satfiskframleiðendur að missa stöðu sína á mörkuðum.

Skjöldur Pálmason hjá Odda á Patreksfirði og formaður íslenskra saltfiskframleiðenda segri þetta hafa mikla þýðingu. Á Spáni, Ítalíu og á Grikklandi vilji neytendur hafa saltfiskinn hvítann: „Það hefur verið talsvert mikið verðfall og eftirspurn eftir saltfiski hefur minnkað. Það er hinsvegarmjög erfitt aðselja hvort það er bein afleiðing af þessu eða einhverju öðru en við vonumst að með þessu getum við skaffað markaðnum þá vöru sem hún hefur óskað eftir hingað til".

Evrópusambandið setur ákveðin skilyrði fyrir notkun fosfata og ætlar að fygljast með til að tryggja að þetta takmarki ekki framboð á hráefni í hinn gula þurrkaða saltfisk eða bacalau sem er eftirsóttur í Portúgal.