Flugstöð Leifs Eiríkssonar ohf. og TM Software undirrita samstarfssamning
 Undirritaður hefur verið samstarfssamningur milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar ohf. og TM Software um rekstur á tölvubúnaði og þráðlausu neti í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. TM Software mun annast rekstur á tölvubúnaði á brottfararsvæði flugstöðvarinnar þar sem farþegum gefst kostur á því að kaupa sér aðgang að Interneti. Auk þess mun TM Software sjá um rekstur á þráðlausu neti í flugstöðinni og gefst farþegum þar með kostur á að tengjast Internetinu á eigin fartölvum.
Undirritaður hefur verið samstarfssamningur milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar ohf. og TM Software um rekstur á tölvubúnaði og þráðlausu neti í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. TM Software mun annast rekstur á tölvubúnaði á brottfararsvæði flugstöðvarinnar þar sem farþegum gefst kostur á því að kaupa sér aðgang að Interneti. Auk þess mun TM Software sjá um rekstur á þráðlausu neti í flugstöðinni og gefst farþegum þar með kostur á að tengjast Internetinu á eigin fartölvum. Á mynd: Hrönn Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunarsviðs FLE ohf. og Sigurður Þórarinsson, framkvæmdastjóri hjá TM Software.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				