Flug til Mexico í sumar
Ferðaskrifstofan Trans-Atlantic hefur undanfarið orðið vör við töluverðan áhuga á Suðurnesjum á ferðum sínum til Mexico segir í fréttatilkynningu frá félaginu. Meðal þeirra sem fara með Trans-Atlantic til Mexico er útskriftarhópur frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Félagið mun því gefa öðrum Suðurnesjabúum kost á kynningu starfsemi sinnar. Kynningin mun fara fram fimmtudagskvöldið 24. febrúar næstkomandi á Ránni í Keflavík og hefst hún kl. 20:00.
Riviera Maya í Mexico
Flogið er í beinu flugi á Cancun og keyrt suður tæplega 60 km. til bæjarins Playa Del Carmen á Yucatan skaga.
Yucatan skaginn er í SA-hluta Mexico og er hann eitt vinsælasta ferðamannasvæðið í Mexico. Eitt fallegasta svæði hans er strandlengjan Riviera Maya. Riviera Maya nær frá Playa Del Secreto til Punta Allen á verndarsvæði Sian K’aan. Pálmatré , hvítar strendur og kristaltær sjór. Karíba sjórinn eins langt og augað eigir. Þar má auk þess sjá Maya pýramida, frumskóg, tær lón og Maya þorp og margt fleira. Er þetta hluti af fjölmörgu í umhverfinu sem heillar ferðamanninn. Rétt utan við ströndina er svo næststærsta kóralrif heimsins með öllum sínum litaafbrigðum og ótrúlegan fjölda fiska í öllum regnbogans litum. Betri stað til köfunar eða til að snorkla er vandfundin. Allar tegundir siglinga og stórfiskaveiðar eru vinsæl afþreying.
Stærsti bærinn á Riviera Maya er Playa Del Carmen. Bær sem iðar af lífi allan sólarhringinn með fjölda afþreyingar möguleika, skemmtistaða, bara, veitingastaða og verslana með nútímavarning jafnt sem varning Maya indíána, en þeir eru fjölmennir á Yucatan skaganum. Margar verslanir hafa á boðstólnum handverk Maya gerð úr silfri, viði, leir eða klæði ýmiskonar á verði sem þú átt hvergi að venjast.Stutt er yfir í eyjuna Cozumel, sem heimsfræg er fyrir sína köfunarstaði og staði til að snorkla. Ferð með ferjunni tekur um 40 mínútur. Einnig er hægt að skreppa til Kúbu í sólarhringsferð og skemmta sér í Havana í sólarhring.
Yucatan svæðið spannar áhugasvið flestra er þangað koma, hvort sem það er á sviði menningar, náttúru eða afþreyingar. Einstakur staður til að upplifa einstakt sumarfrí.
Allt innifalið....
Hótelin sem Trans-Atlantic ehf. leggur áherslu á eru svokölluð “All inclusive” eða “Allt Innifalið.” Þetta þýðir í stórum dráttum að allur matur er innifalin og þar eru engin takmörk og bæði hægt að velja um A la Carte og aðrar tegundir veitingahúsa. Einnig eru allir drykkir sem boðið eru upp á, áfengir sem óáfengir, innifaldir (ótakmarkað magn). Auk þess er einnig innifaldir fjölmargir afþreyinga möguleikar, margs konar íþróttir, skipulögð skemmtidagskrá og glæsilegar stórsýningar á kvöldin ásamt mörgu öðru.
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu www.transatlantic.is auk fjölda mynda og texta.Playa Del Carmen – Hótelin sem í boði eru:
WYNDHAM VIVA MAYA RESORT: 4+ stjörnur, ALL INCLUSIVE PAKKI.
www.vivaresorts.com
GRAN PORTO REAL RESORT: 5 stjörnur, ALL INCLUSIVE PAKKI
www.realresorts.com.mx
REAL PLAYA DEL CARMEN: 4 stjörnur, ALL INCLUSIVE PAKKI
www.realresorts.com.mx
Aðrir gistimöguleikar
Viðskiptavinum Trans-Atlantic mun einnig gefast kostur á því að velja sér aðra gistimöguleika s.s. strandhús (bungalow) www.cancuntulun.com og 3 stjörnu hótel með eigin strandklúbbi.
Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér þessar ferðir til Mexico og aðra gisti-möguleika á heimasíðu ferðaskrifstofunnar ásamt almennum upplýsingum um staðinn. Einnig er boðið uppá ævintýraferð til Mexico, Guatemala og Belize:
Ævintýri á slóð maya indíána
Mexico - Belize - Guatemala
Einstök ævintýraferð sem veitir innsýn inn í hinn forna menningarheim Maya indíána. Fólk kynnist stórkostlegu umhverfi náttúru og dýra og ferðast inn í töfrandi regnskógasvæði. Skoðaðar gamlar menningarborgir-pýramída og Maya þorp. Synt í kristaltærum sjónum við næst stærsta kóralrif heims, innan um fiska í öllum regnbogans litum. Rölt meðal Maya milli þröngra stræta og litskrúðugra markaða, horfið aftur í tíma og rúmi.
Brottfarir: 25/5 (uppseld) , 8/6, 22/6, 6/7, 20/7 og 3/8 2005.
Ferðirnar eru 14 dagar og 13 nætur
Nánari upplýsingar:
Ferðaskrifstofan Trans-Atlantic. Sími: 588 8900.
Vefsíða: www.transatlantic.is
Hr. Ómar R. Banine
Hr. Egill Örn Arnarson
Fréttatilkynning