Fleiri gistinætur á hótelum
Á vef Hagstofu Íslands kemur fram að gistinóttum á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða, fjölgaði úr 9.900 i 10.300 í maí mánuði milli ára. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum en á landsvísu stóð fjöldinn í stað. Mesta fjölgun gistinátta var á Suðurlandi úr 10.700 í 13.500.
Nánar á vef Hagstofunnar
Landið allt.
Mynd-VF/elg