Fleiri gista á Suðurnesjum
Gistinóttum á Suðurnesjum í nóvembermánuði fjölgaði á milli ára um 16%, voru 4.900 samanborið við 4.200 í nóvember 2011. Þetta kemur fram hjá Hagstofu Íslands en þar er sagt frá því að gistinóttum á landinu í nóvember hafi fjölgað um 48% milli áranna 2011 og 2012.
Gistinætur 2012 voru 115.200 samanborið við 77.600 í nóvember 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 75% af heildarfjölda gistinátta í nóvember en gistinóttum þeirra fjölgaði um 54% samanborið við nóvember 2011. Á sama tíma voru gistinætur Íslendinga 33% fleiri en árið áður.