Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Fjórða kynslóð Honda CR-V frumsýnd í Reykjanesbæ
Föstudagur 11. janúar 2013 kl. 17:49

Fjórða kynslóð Honda CR-V frumsýnd í Reykjanesbæ

Nýr Honda CR-V verður kynntur um helgina hjá Bernhard í Reykjanesbæ.  Þetta er fjórða kynslóð CR-V sem hefur jafnframt verið einn af söluhæstu fjórhjóladrifsbílum landsins í mörg ár. Bíllinn var hannaður sérstaklega með Evrópumarkað í huga og ýmsar athyglisverðar breytingar hafa verið gerðar. Ekki verður annað sagt en þær hafi tekist með miklum ágætum því nýr CR-V hefur verið hlaðinn verðlaunum og var meðal annars tilnefndur á dögunum sem bíll ársins í Evrópu. Aðrir titlar sem CR-V hefur þegar hampað eru Besti fjölskyldubíll ársins, að mati Kelley Blue Book's (kbb.com). Hann er á topp-tíu lista sama aðila yfir bíla með hæsta endursöluvirðið og hlaut fullt hús stiga hjá National Highway Transportation Safety Administration, fyrir öryggi. Honda CR-V er mest seldi bíllinn í sínum flokki í Bandaríkjunum og var valinn besti fjórhjóladrifni bíll ársins 2012 af tímaritinu Total 4x4 Magazine. Í umsögn blaðsins var Honda CR-V hælt sérstaklega fyrir að vera betur hljóðeinangraður en aðrir bílar í sambærilegum flokki og einnig fyrir sérstaklega gott notkunarrými. Báðum þessum eiginleikum hefur nú verið gert enn hærra undir höfði í nýju útfærslunni.
 

Umhverfisvænir þættir sem hafa ávallt prýtt CR-V hafa nú fengið enn meira vægi. Útblástur koltvísýrings hefur verið takmarkaður enn frekar og eldsneytisnýting bætt. Nýr CR-V er umtalsvert rúmbetri en fyrirrennarar hans. Ný hönnun auðveldar umgengni til muna. Hægt er að fella saman aftursæti á einfaldan hátt og farangursrými er 148 lítrum rúmbetra en í eldri gerð.  Aukið hefur verið við hljóðeinangrun í gólfi, í afturhurðum og í geymsluhólfum undir sætum og með því tekist að lækka vélar- og veghljóð um þrjú desibil. Bogadregnir hliðarspeglar auka mjög  sjónsvið ökumannsins og LED-dagljós eru nú bæði að framan og aftan sem eykur þægindi og öryggi um leið. Frá árinu 1995 hafa meira en fimm milljón CR-V bíla verði seldir um allan heim. Þess má geta að 97% þeirra CR-V bíla sem seldir voru árið frá 1997 eru ennþá í notkun hér á landi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Opið er laugardag á milli kl. 12:00 og 16:00 og sunnudag á milli kl. 13:00 og 16:00.