Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

Fjórða besta flugvallarveitingahús heims
Fimmtudagur 27. nóvember 2014 kl. 10:19

Fjórða besta flugvallarveitingahús heims

– samkvæmt tímaritinu Men's Journal

Tímaritið Men's Journal hefur valið NORD veitingahús í Flugstöð Leifs Eiríksonar fjórða besta veitingahús á flugvelli í heiminum og í fyrsta sæti í Evrópu.

Sæmundur Kristjánsson, framkvæmdastjóri NORD, segir þetta mikinn heiður og viðurkenningu á þeirri stefnu sem keyrð hefur verið undanfarin ár á veitingastaðnum.

„Fyrsta flokks hráefni, matgerð á staðnum, gott vöruúrval miðað við ferðatíma viðskiptavina fyrirtækisins og frábærir starfsmenn hafa skapað þessa viðurkenningu. Við eigum þegar stóran hóp fastra viðskiptavina, bæði innlendra og erlendra. Þeir hafa einnig með ábendingum og hrósi sínu hjálpað okkur í þessari vegferð,“ segir Sæmundur.

Fyrir Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE) er þetta enn ein fjöður í hattinn, en sem kunnugt er hefur FLE unnið til margvíslegra verðlauna og viðurkenninga á undanförnum árum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024