Fjölgun farþega um Leifsstöð
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um rúmlega 19% í aprílmánuði miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmlega 109 þúsund farþegum árið 2003 í rúmlega 130 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur tæplega 16% milli ára. Farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgar þó hlutfallslega enn meira eða um 40%.
Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um rúmlega 20% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2003, eða úr rúmlega 318 þúsund farþegum í rúmlega 382 þúsund farþega.
Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um rúmlega 20% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2003, eða úr rúmlega 318 þúsund farþegum í rúmlega 382 þúsund farþega.