Fjölgun farþega um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í september
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp 4% í september miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmlega 180 þúsund farþegum árið 2006 í rúmlega 187 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum 5% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fækkaði um tæp 2%.