Fjölgun farþega um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í október
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um 9% í október miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmlega 135 þúsund farþegum árið 2004 í tæpa 148 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur tæplega 10% milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um 6%.
Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um rétt tæp 11% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2004, eða úr tæpum 1.443 þúsund farþegum í rétt tæpa 1.599 þúsund farþega.