Fjölgun farþega um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í febrúar
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um rúm 4% í febrúar miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmum 89 þúsund farþegum árið 2005 í tæplega 93 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur tæpum 9% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fækkaði um tæp 22%.
Af vef flugstöðvarinnar.






