Fjölgun farþega um Flugstöð Leifs Eiríkssonar eftir samdrátt í fyrra

Á meðan farþegum sem fara um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fer fjölgandi hefur þróunin verið þveröfug í nágrannalöndum okkar þar sem farþegum hefur fækkað síðastliðna mánuði og töluvert milli ára. Sem dæmi sína tölur fyrstu fimm mánuði ársins 3,1% fækkun farþega hjá Schiphol flugvelli og 5,1% hjá Kaupmannahafnarflugvelli. Fjölgun farþega um Leifsstöð er því sérstaklega ánægjuleg í því ljósi.
Sala í verslunum Flugstöðvarinnar
Vegna fjölgunar farþega fyrstu sex mánuði ársins hækkuðu verslunartekjur Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á milli ára um 11%, úr um 1.535 milljónum fyrstu sex mánuði ársins 2002 í 1.704 milljónir árið 2003. Sala á hvern farþega jókst á sama tíma úr 2.860 krónur í 2.940 krónur sem er 2,8% söluaukning. Þessi góða aukning er betri en áætlanir fyrirtækisins gerðu ráð fyrir.
Aðrar tekjur Flugstöðvarinnar, en undir þær falla húsaleigu-, aðstöðu-, bílastæða- og auglýsingatekjur, hafa aukist um 3,9% milli ára ef teknir eru fyrstu 6 mánuðir ársins, eða úr tæplega 251 milljón í tæplega 261 milljón. Bílastæðisdögum hefur m.a. fjölgað um 27%% milli ára sem er mun meiri aukning en áætlað var.