Fjölgun farþega um Flugstöð Leifs Eiríkssonar
				
				Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæplega 12% í ágústmánuði miðað við sama tíma í fyrra, úr tæplega 170 þúsund farþegum árið 2002 í rúmlega 189 þúsund farþega nú.  Mest vegur fjölgun farþega til og frá Íslandi sem er rúmlega 15% milli ára.  Á sama tíma hefur farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fækkað um 9%.  Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar því fjölgaði um rúmlega 9% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2002, eða úr rúmlega 880 þúsund farþegum í rúmlega 962 þúsund farþega. 
				
	
				
					
						
					
					
						
					
				
				
				 								
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				