Fjölgun farþega um FLE í september
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um 18% í september miðað við sama tíma í fyrra, úr tæpum 140 þúsund farþegum árið 2004 í tæpa 165 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur um 19% milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um tæp 15%.
Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um 11% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2004, eða úr rúmlega 1.307 þúsund farþegum í rétt tæplega 1.451 þúsund farþega.
Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um 11% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2004, eða úr rúmlega 1.307 þúsund farþegum í rétt tæplega 1.451 þúsund farþega.