Fjölgun farþega sem fara um Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um rúmlega 26% í nóvembermánuði miðað við sama tíma í fyrra, úr tæplega 71 þúsund farþegum árið 2002 í rúmlega 89 þúsund farþega nú. Mest vegur fjölgun farþega til og frá Íslandi sem er rúmlega 28% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði engu að síður um 15% á sama tíma. Nóvember er sá mánuður ársins þar sem fjölgun farþega hefur verið hlutfallslega mest milli ára.
Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar því fjölgaði um tæplega 12% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2002, eða úr rúmlega 1.157 þúsund farþegum í rúmlega 1.291 þúsund farþega.
Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar því fjölgaði um tæplega 12% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2002, eða úr rúmlega 1.157 þúsund farþegum í rúmlega 1.291 þúsund farþega.