Viðskipti

Ferðamönnum í júní fjölgaði um rúm 13%
Þriðjudagur 24. júlí 2012 kl. 08:06

Ferðamönnum í júní fjölgaði um rúm 13%

Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 74.325 erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð í nýliðnum júnímánuði eða tæplega níu þúsund fleiri en í júní á síðasta ári.

13,3% aukning milli ára


Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ferðamenn í júní síðastliðnum voru 13,3% fleiri en í sama mánuði í fyrra en á því ellefu ára tímabili sem Ferðamálastofa hefur verið með brottfarartalningar í Leifsstöð hefur aukningin í júní verið að jafnaði 9,0% milli ára.

Bandaríkjamenn og Þjóðverjar nærri þriðjungur ferðamanna

Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í júní frá Bandaríkjunum (19,2%) og Þýskalandi (13,0%) en þar á eftir komu ferðamenn frá Bretlandi (7,9%), Noregi (7,9%), Frakklandi (5,9%), Danmörku (5,6%) og Svíþjóð (5,4%). Samanlagt voru þessar sjö þjóðir tæplega tveir þriðju ferðamanna í júní.

Aukning frá öllum markaðssvæðum í júní


Ef litið er til einstakra markaðssvæða má sjá aukningu frá þeim öllum, hlutfallslega mesta frá Bretlandi (34,6%), N-Ameríku (20,3%) og löndum sem flokkuð eru undir annað (17,9%).

18,4% fleiri ferðamenn á fyrri helmingi ársins


Alls hafa 244.885 erlendir ferðamenn farið frá landinu á fyrri helmingi ársins eða 37.999 fleiri en á sama tímabili í fyrra. Aukningin milli ára nemur 18,4%. Hlutfallsleg aukning hefur verið frá öllum mörkuðum, langmest þó frá Bretlandi eða 42,6%, N-Ameríku (27,1%) og löndum sem flokkuð eru undir önnur svæði (21,8%). Hlutfallsleg aukning er heldur minni frá Mið- og S-Evrópu (7,2%) og Norðurlöndunum (6,0%).

Utanferðir Íslendinga 
rúmlega 1.900 fleiri

Íslendingar fóru utan í júní ár en í sama mánuði í fyrra. Í júní í ár voru þeir 39.361 en í fyrra 37.438. Frá áramótum hafa 170.820 Íslendingar farið utan, um átta þúsund fleiri en á fyrri helmingi ársins 2011. Aukningin nemur 5,1% milli ára.