Viðskipti

Félagasamstæða Bláa Lónsins hf. endurskipulögð
Föstudagur 25. ágúst 2023 kl. 16:48

Félagasamstæða Bláa Lónsins hf. endurskipulögð

Á fundi hluthafa í Bláa Lóninu hf. í dag var samþykkt að stofna sérstakt eignarhaldsfélag utan um samstæðu félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Eftirfarandi félög eru innan samstæðu Bláa Lónsins hf. og munu þau öll verða að fullu í eigu hins nýja eignarhaldsfélags eftir breytingarnar:

• Bláa Lónið Svartsengi ehf. – Félagið annast allan rekstur í Svartsengi. Undir hann fellur baðstaðurinn Bláa Lónið, hótelin Silica og The Retreat, heilsulindin Retreat Spa, veitingastaðirnir Lava, Retreat Spa Restaurant og Michelin staðurinn Moss auk Blue Café. Þá fellur einnig undir reksturinn Lækningalind félagsins og Rannsókna- og þróunarsetur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

• Íslenskar Heilsulindir ehf. – Eignarhaldsfélag um hluti í öðrum baðstöðum og ýmis þróunarverkefni, þar með talið uppbyggingu félagsins í Kerlingarfjöllum og Þjórsárdal.

• Blue Lagoon Skincare ehf. – Félagið annast þróun, framleiðslu og sölu húðvara innanlands og erlendis.

• Blue Lagoon Journeys ehf. – Þróunarfélag um aðra afþreyingartengda þjónustu innan samstæðunnar.

• Eldvörp ehf. – Félagið rekur allar fasteignir félagsins.

Nýja eignarhaldsfélagið mun bera nafnið Bláa Lónið hf. en starfsemi félagsins í Svartsengi mun nú fá nafnið Bláa Lónið Svartsengi ehf. Hluthafar í nýju eignarhaldsfélagi eru einvörðungu þeir sem áður voru hluthafar í því félagi sem nú er Bláa Lónið Svartsengi ehf.

Þessar breytingar eru liður í áætlun félagsins um að einfalda skipulag, skerpa sýn og auka hagkvæmni í rekstri fyrrgreindra félaga, en starfsemi Bláa Lónsins hf. hefur orðið fjölþættari síðustu misseri. Í því samhengi má nefna nýafstaðna uppbyggingu hálendismiðstöðvar í Kerlingarfjöllum, fyrirhugaðar framkvæmdir í Þjórsárdal og aukna áherslu á markaðssetningu húðvara félagsins erlendis.

Stefnt að skráningu vorið 2024

Áfram er unnið að fyrirhugaðri skráningu félagsins á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi og er nú horft til vorsins 2024. Með því er tryggt að ofangreindar skipulagsbreytingar verði að fullu komnar til framkvæmda auk þess að heilt rekstrarár, eftir COVID-19, liggi fyrir. Endanleg tímasetning mun þó ráðast af markaðsaðstæðum og framvindu undirbúningsvinnu.

Rekstur samstæðunnar hefur gengið vel það sem af er ári. Innan samstæðunnar starfa um 800 manns og er samstæðan einn af meginburðarásum í íslenskri ferðaþjónustu.